15. febrúar 2012
Upplýsingar um tólf ný ungnaut úr 2010 árgangi
Nú eru komnar inn upplýsingar um tólf ungnaut úr 2010 árgangi til viðbótar þeim 16 sem áður höfðu verið birtir úr þessum árgangi. Þessi naut eru Kústur 10061 frá Birtingaholti 4, Lúður 10067 frá Brúnastöðum, Sólon 10069 frá Bessastöðum, Dropi 10077 frá Fossi, Himinn 10078 frá Birtingaholti 1, Neptúnus 10079 frá Hvanneyri, Úranus 10081 frá Hvanneyri, Bætir 10086 frá Núpstúni, Úlli 10089 frá Dæli, Skjár 10090 frá Akurey 2, Kistill 10094 frá Egilsstaðakoti og Mörsugur 10097 frá Geirakoti.28. desember 2011
Ný reynd naut væntanleg í kútana
Eins og fram hefur komið valdi Fagráð í Nautgriparækt ný reynd naut til notkunar á fundi sínum 19. desember sl. Vel gengur að dreifa þessum nautum til frjótækna og um áramót verða þau komin á Suðurland, Vesturland, Húnavatnssýslur, Skagafjörð, Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur. Strax eftir áramót verður þeim dreift á Vestfirði og á Austurland.Þá hefur sæðistaka úr nautum fæddum árið 2010 gengið nokkuð vel og þar leynist ugglaust margur kostagripur. Hins vegar mætti framboð af nautkálfum vera meira og vil ég nota þetta tækifæri til að hvetja bændur til að láta ráðunauta vita af nautkálfum undan nautsmæðrum og nautsfeðrum.
20. desember 2011
Ný reynd naut úr 2005 og 2006 árg. í dreifingu
Fagráð í nautgriparækt fundaði í gær og lauk þá við afkvæmadóm nauta f. 2005. Jafnframt var tekin ákvörðun um hvaða reyndu naut verða í dreifingu á næstu mánuðum. Töluverðar breytingar voru gerðar og koma 8 ný naut til dreifingar nú, 7 úr 2005 árgangi og 1 úr 2006 árgangi. Þá voru nokkur eldri naut tekin úr dreifingu, ýmist vegna þess að sæði úr þeim er búið eða notkun þeirra er orðin nægileg.Þau naut sem koma ný til dreifingar eru; Baugur 05026 frá Kotlaugum, Vindill 05028 frá Ytri-Tjörnum, Herkúles 05031 frá Bessastöðum, Frami 05034 frá Skúfsstöðum, Sússi 05037 frá Hóli, Röskur 05039 frá Brúnastöðum, Birtingur 05043 frá Birtingaholti 1 og Koli 06003 frá Sólheimum. Upplýsingar um þessi naut eru komin hér í nautaskrána.
8. desember 2011
Nýtt kynbótamat komið inn
Búið er að uppfæra kynbótmat nautanna hér í nautaskránni en keyrslu þess lauk fyrir skömmu. Fagráð í nautgriparækt mun funda þann 19. desember n.k. og þá verður tekin ákvörðun um hvaða naut verða áfram í dreifingu og hvaða naut koma til dreifingar að lokinni afkvæmaprófun. Fagráð mun væntanlega ákveða að setja í dreifingu naut úr seinni hluta 2005 árgangsins og möguleiki er að einhver naut úr 2006 árgangnum fljóti með.7. nóvember 2011
Upplýsingar um sex ungnaut úr 2010 árgangi
Nú eru komnar inn upplýsingar um sex ungnaut úr 2010 árgangi til viðbótar þeim 10 sem áður höfðu verið birtir úr þessum árgangi. Þessi naut eru Eskill 10027 frá Ytri-Tjörnum, Drangi 10031 frá Bakka, Svipur 10038 frá Hrafnagili, Fossdal 10040 frá Merkigili, Mói 10054 frá Bryðjuholti og Ómur 10062 frá Ytri-Skógum. Hér á vefnum er hægt að sækja pdf-skjöl til útprentunar en uppsetning þeirra er eins og ungnautaspjöldin sem menn kannast við.
Búsnúmer
Vefsvæði
Naut
Útgáfa